Hafa samband Veftré Minnka letur Stækka letur English
Forsíða FyrirtækiðVörurSamstarfsaðilarPantanir og tilboðBæklingarTæknilýsingarFróðleikurTenglar
 
Hert öryggisgler

Hert gler (perlugler, tempered glass, toughened glass) er framleitt úr venjulegu gleri í sérstökum hersluofni.  Þar er það hitað í yfir 650°C og snöggkælt með öflugum loftblæstri.  Við hersluna myndast spennumunur milli yfirborðs glersins og kjarna þess.  Á yfirborðinu verður til þrýstispenna en togspenna í kjarnanum.  Einskonar jafnvægi myndast milli þessara andstæðu krafta.  Spennulagið á yfirborði glersins er u.þ.b. 20% af heildarþykkt glersins á hvorri hlið.

Brotamynstur herts glers er ólíkt öðru gleri.
Ef hert gler brotnar þá brotnar það í margar litlar perlur / molnar niður. 

Hert gler má ekki skera, bora, sandblása eða vinna á annan hátt eftir herslu.  Truflist spennujafnvægið getur það brotnað.  Þess vegna verður að vinna glerið áður en það er hert, t.d. sandblása, slípa, saga, bora o.s.frv. og eftir herslu má t.d. nota það í samlímt öryggisgler og einangrunargler.  Kantar herta glersins eru viðkvæmir eins og á öðru gleri.  Kantskemmdir geta orsakað að glerið brotni seinna eftir uppsetningu. Því þarf að meðhöndla glerið með gætni við flutning og ísetningu. Flestar gerðir glers er hægt að herða nema vírgler og spegla.


Útlitsmunur getur verið á hertu gleri og óhertu, t.d. örlitlar bylgjur á yfirborðinu þess.  Þær orsakast af snertingu við færibandarúllur við hersluna.  Auk þess má greina spennumunstur við sérstök birtuskilyrði og sjónarhorn.  Hert gler er ekki eins flatt eftir hersluna og venjulegt gler.  Gera má ráð fyrir allt að 3 mm/m boga.

Gler sem inniheldur Nikkelsúlfíð og verður fyrir hitaálagi getur sprungið með tímanum.  Ekki er hægt að koma í veg fyrir það en minnka má líkurnar með því að setja glerið eftir herslu í sérstakan hitaofn (heat soak test).  Hert gler getur einnig brotnað seinna eftir uppsetningu, vegna óvandaðrar uppsetningar og skemmdir á köntum eða hornum eftir ranga meðhöndlun og geymslu.  Sérstaka varúð skal ávallt hafa við meðhöndlun og meðferð á gleri.

Sérstakar reglur eru varðandi staðsetningu borgata og úrtaka í hertu gleri.  Leitið upplýsinga hjá sölumönnum.
Hér má nálgast upplýsingar um staðsetningu og opnunartíma Samverks.

Hér er hægt að reikna út orkusparnað og kostnað við endurglerjun Orkusetur - Reiknivél

Glerverksmiðjan Samverk ehf | Eyjasandi 2, 850 Hella | Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi | Sími 488 9000 | Fax 488 9001 | samverk@samverk.is