Speglar eru búnir til úr glæru eða lituðu hágæða flotgleri. Önnur hlið spegilsins er silfurhúðuð, en silfrið hefur áður fengið sérstaka meðferð. Silfrið er varið með nokkrum lögum af sérstakri málningu. Með þessu fæst að lágmarki 92% endurkast ljóssins.
Samverk notar Mirox New Generation Ecological (MNGE) spegla í framleiðslu sína. Þeir eru viðurkennd hágæðavara. Málningin á bakhlið þeirra inniheldur hvorki kopar né blý. Frábært viðnám gegn ýmsum loftefnum (gufum og söltum). Í öldrunarprófi skv. ISO stöðlum kemur fram að Mirox endist þrisvar sinnum lengur en hefðbundnir speglar. Allt að sjö sinnum meira viðnám en venjulegir speglar gegn sterkum efnum (ammoníak í ákv. hreinsiefnum) og ýmsum sprayefnum ss. hárlakki og svitalyktareyði.
Uppsetning
Ýmsir möguleigar eru á að festa speglana upp, t.d. sérstakar festingar eða líma með sérstöku speglalími á túpum.
Nauðsynlegt er að vanda uppsetningu spegla svo þeir brotni síður og endist lengur.
Til að minnka hættu á broti:
Skaltu nota plastskinnur þegar þú festir spegil með skrúfum
Skaltu nota millilag úr öðru en málmi þegar þú innrammar spegil eða notar málmklemmur til til að festa hann
Góð regla er að láta spegilinn ekki snerta hörð efni eins og málma og postulín eða önnur brothætt efni.
Til að lengja endinguna:
Skaltu festa spegilinn á hreint og þurrt yfirborð
Skaltu bera grunn á óslétt yfirborð
Skaltu gæta þess að flöturinn sem spegillinn er festur á sé vel sléttur
Til að tryggja góða endingu spegla í röku umhverfi s.s. í baðherbergjum, búningsklefum o.s.fr. skaltu mynda bil (t.d. með millibilsklossa sem ekki er úr málmi) fyrir aftan spegilinn svo loft geti flætt lóðrétt bakvið hann og þurrkað rakann. Raki eykur líkur á að speglar skemmist.
Þrif
Notaðu aðeins hreint vatn til að þrífa spegla. Ekki má nota hreinsiefni sem innihalda ammoniak eða önnur sterk efni. Þurrkið spegilinn eftir hreinsun, sérstaklega raka kanta.