Hafa samband Veftré Minnka letur Stækka letur English
Forsíða FyrirtækiðVörurSamstarfsaðilarPantanir og tilboðBæklingarTæknilýsingarFróðleikurTenglar
 
Fyrirtækið

Glerverksmiðjan Samverk ehf. var stofnuð 18. janúar 1969 af 8 heimamönnum í Rangárþingi, til að framleiða einangrunargler, og er elsta starfandi glerverksmiðja landsins.  Aðsetur verksmiðjunnar er að Eyjasandi 2 á Hellu.  
Sýningarsalur er í Víkurhvarfi 6 Kópavogi, í nýja verslunarhverfinu fyrir ofan Elliðavatn, við Breiðholtsbrautina.

Samverk er nútímalegt og tæknivætt glervinnslu iðnaðarfyrirtæki.  Aðal hráefnið er flotgler og er það flutt inn frá evrópu til margvíslegar úrvinnslu og fullvinnslu í glerverksmiðjunni. Glerlausnir og framleiðsluvörur eru sérsmíðaðar og sérframleiddar eftir óskum viðskiptavina fyrir hvert verkefni. Samverk hefur á að skipa reyndu starfsfólki sem hefur starfað hjá fyrirtækinu árum saman.

Framleiðsla okkar í einangrunargleri er gerðaprófuð og vottuð af Nýsköpunarmiðstöð Íslands og merkt IGH gæða- og framleiðslueftirlitskerfi Samtaka íslenskra húshlutaframleiðanda.   
  
Hér má nálgast upplýsingar um staðsetningu og opnunartíma Samverks.

Hér er hægt að reikna út orkusparnað og kostnað við endurglerjun Orkusetur - Reiknivél

Glerverksmiðjan Samverk ehf | Eyjasandi 2, 850 Hella | Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi | Sími 488 9000 | Fax 488 9001 | samverk@samverk.is