Hafa samband Veftré Minnka letur Stækka letur English
Forsíða FyrirtækiðVörurSamstarfsaðilarPantanir og tilboðBæklingarTæknilýsingarFróðleikurTenglar
 
Ábyrgðarskilmálar

1.  ÁBYRGÐARSKILMÁLAR FYRIR EINANGRUNARGLER
Ábyrgðin bætir gallað einangrunargler með nýju einangrunargleri.  Ábyrgðin á einangrunargleri gildir í fimm ár frá útgáfu reiknings.

Tvö fyrri ár ábyrgðartímans nær ábyrgðin bæði til ísetningarefna og ísetningar. Ábyrgð vegna ísetningar reiknast samkvæmt mælitaxta, eins og hann er hverju sinni, útgefinn af verðskrárnefndum Trésmiðafélags Reykjavíkur og Meistarafélags húsasmiða í Reykjavík.

Þrjú seinni ár ábyrgðartímans nær ábyrgðin einungis til afhendingar nýs glers á byggingarstað, ef hann er innan bæjarmarka framleiðanda eða til móttökustöðvar viðurkenndra flutningsaðila.  Ábyrgðin nær þá ekki til ísetningar.

Ábyrgðin tekur til galla vegna móðu og ryks milli glerja.  Um ábyrgð vegna annarra hugsanlegra galla gilda ákvæði laga nr. 39/1922 um lausafjárkaup.

Endurnýjað gler vegna galla opnar ekki nýjan ábyrgðartíma.

2.  ATRIÐI SEM UNDANÞEGIN ÁBYRGÐ ERU:
Kostnaður við verkpalla, krana eða annars kostnaðar við að koma upp aðstöðu vegna framkvæmdarinnar.
Kostnaður við byggingarvinnu eða aðra vinnu við að taka í sundur byggingarhluta sem tengdir eru glugganum.
Kostnaður við frágang t.d. múrverk, smíði, málningu og annað þess háttar.

3.  SKILYRÐI  ÞESS AÐ ÁBYRGÐIN VERÐI VIRK ERU:
Að ísetning sé í samræmi við kröfur framleiðanda (Sjá Rb-blað nr. Rb(31) 120) og að hún sé unnin af fagmanni viðurkenndum af framleiðanda.

Að þess hafi verið gætt að rúðan yrði ekki fyrir óeðlilegum þvingunum, hnjaski, höggum eða hreyfingu á gluggaefni.
Að þess hafi verið gætt að rúðan yrði ekki fyrir skemmdum vegna múrhúðunarefna, frostþenslu, rangrar geymslu eða af völdum ólífrænna efna.
Að þess hafi verið gætt að rúðan hafi ekki hlotið óeðlilega meðhöndlun t.d. við slípun, sandblástur, málun eða við yfirborðsmeðhöndlun á annan hátt.

Að ísetning sé fullfrágengin.  Rúðuna má ekki festa til bráðabirgða með listum.  Lím rúðunnar verður að vernda gegn vatni og sólarljósi.  Notið rétta undirleggsklossa í samræmi við gluggafals.
Að glugganum sé haldið eðlilega við.
Að staðið hafi verið við greiðslur til framleiðanda með peningum.

4. BROTAÁBYRGР
Brotaábyrgð framleiðanda lýkur þegar glerið hefur verið afhent kaupanda af eigin flutningabíl Samverks eða verið afhent á móttökustöð viðurkennds vöruflutningsaðila.  Viðskiptavinum er bent á að kaupa sér brotatryggingu t.d. fyrir flutning frá vöruflutningamiðstöðvum, að geyma gler, ísetningartryggingu.

5. MEÐFERÐ KVARTANA 
Tilkynning um galla skal að jafnaði berast til síðasta aðila í afgreiðslunni  þ.e. seljanda, iðnaðarmanns, framleiðanda á glugganum eða húsum.  Í tilvikum þegar þetta er ekki unnt, skal hafa samband við glerframleiðanda.  Þegar tilkynnt er um galla skal eftir því sem unnt er gefa eftirfarandi upplýsingar:
Nafn kaupanda og heimilisfang.
Hvar glerið er staðsett og nafn þess sem glerjaði.
Hvenær glerið var afhent og hvænær var glerjað.
Ef viðkomandi getur ekki lagt fram reikning um hvenær glerið var keypt skal viðkomandi glerframleiðandi sem framleitt hefur rúðuna samkvæmt merkingu innan í henni gefa upp hvenær hún var framleidd.
Fjöldi skemmdra rúða.
Tegund glers, stærð á gleri, þykkt þess og loftbil.
Ástæða fyrir kvörtun.  Framleiðandi glers ákveður hvort frekari rannsókn fari fram á gallanum.  Í þeim tilfellum þar sem þess þarf er kostnaður greiddur af framleiðanda ef galli reynist vera á hans ábyrgð en að öðrum kosti greiðist kostnaður  af þeim sem kvörtun ber fram.

6. LOFTRÆST FÖLS
 
Föls skulu skilyrðislaust loftræst, að öðrum kosti gilda ábyrgðarskilmálar ekki.  Lágmark 200 mm2 / lm. botnfals. Lágmark 2 göt á hverju botnfalsi.

Ath: Ábyrgð fellur úr gildi ef ekki er farið að skráðum fyrirmælum.
Hér má nálgast upplýsingar um staðsetningu og opnunartíma Samverks.

Hér er hægt að reikna út orkusparnað og kostnað við endurglerjun Orkusetur - Reiknivél

Glerverksmiðjan Samverk ehf | Eyjasandi 2, 850 Hella | Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi | Sími 488 9000 | Fax 488 9001 | samverk@samverk.is