Afhending
Samverk annast heimkeyrslu á gleri á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi á eigin flutningabílum eða á vöruafgreiðslumiðstöðvar eftir samkomulagi.
Hringt er í viðkomandi með fyrirvara til að athuga hvort hægt sé að taka á móti glerinu ákveðinn dag.
Þægileg og örugg þjónusta, glerið er alltaf afhent heilt af okkar eigin flutningabílum og þarf ekki að tryggja sérstaklega.
Ef glerið er flutt pakkað og sett á vöruflutningamiðstöðvar er viðskiptamönnum bent á að tryggja glerið í flutningi frá vöruflutningamiðstöðinni og á áfangastað, við getum aðstoðað við það.
Gæðaeftirlit
IGH: Gæða- og framleiðslueftirlit íslenskra glugga- og hurðaframleiðenda sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur eftirlit og yfirumsjón með.
Ísetning
Ísetning einangrunarglers skal alltaf vera unnin af fagmönnum.
Ending einangrunarglersins fer að mestu leyti eftir gæðum ísetningarinnar.