Ekki bráðabrigðaloka með glerinu heldur skal fullglerja strax.
Þéttilistar:
Lengi hefur tíðkast að nota gúmmílista sem kíttað var með að innan- og utanverðu. Algengast í dag er aftur á móti að notaðir séu EPDM gúmmílistar að utan en butyllistar (eða venjulegir gúmmílistar) að innanverðu, án toppfyllingar.
Fúgufylliefni:
Eins og að ofan greinir eru fylliefni notuð í síminnkandi mæli. Þó er toppfylling viðhöfð enn og nota menn þá fjaðrandi eða teygjanlegt kítti. Algengast er silicon.
Föls:
Eins og segir í ábyrgðarskilmálum Samverks um einangrunargler, skulu föls loftræst með útborun eða rauf í falsið. Þá hafa hallandi föls færst í aukana og er það vel.