Hafa samband Veftré Minnka letur Stækka letur English
Forsíða FyrirtækiðVörurSamstarfsaðilarPantanir og tilboðBæklingarTæknilýsingarFróðleikurTenglar
 
Skilgreiningar

DET – Direct Energy Transmission (Beint orkuflæði) 
Hlutfall sólarorku sem berst beint í gegnum gler miðað við heildarsólarorkuna sem berst að glerinu. (Litrófsdreifing milli 300 og 2150 nm).

EA – Energy Absorption  (Orkugleypni)  
Hlutfall sólarorku sem glerið “gleypir” miðað við heildarsólarorkuna sem berst að glerinu. 


ER – Energy Reflection (Endurkast sólarorku)
Hlutfall sólarorku sem endurkastast af glerinu miðað við heildarsólarorkuna sem berst að glerinu.


LT light transmission – Light Transmission - (Ljósflæði)
Hlutfall ljóss sem berst í gegn um gler miðað við heildarljósmagn.


LR – Light Reflection (Endurkast ljóss)   
Hlutfall ljóss sem endurkastast af gleri miðað við heildarljósmagn


LWSC – Long Wave Shading Coefficient (Skuggastuðull langbylgja)   
Hlutfall þeirrar orku sem glerið hefur gleypt (EA) en hleypir síðan í gegn,  margfaldað með 0,87.


RW  -heimilishljóð

Rw - Noise Reduction Factor (Hljóðvarnarstuðull)
RW -heimilishljóð- er vegið meðaltal fyrir hljóðeinangrun sem mæld er á tilraunastofu við mismunandi tíðni.
R´ W  er reiknað á sama hátt og RW en mælt á staðnum (í raunverulegum byggingum).
RA tr  (A) Noise Reduction Factor (Hljóðvarnarstuðull)
RA tr  (A) -umferðarhávaði.  Hér hefur leiðréttingastuðlinum Ctr verið bætt við RW til að taka meira tillit til hávaða frá umferð.


SC – Shading Coefficient (Skuggastuðull)
Skuggastuðullinn er fundinn út með því að margfalda sólarstuðulinn (SF) með 0,87 sem er sólarstuðull fyrir 3 mm glært flotgler. 
 

SF – Solar Factor (Sólarstuðull)  eða Total Energy Transmission (Heildarorkuflæði)
Hlutfall heildarorkuflæðis sem berst í gegnum glerið miðað við heildarorkuna sem berst að glerinu.  Heildarorkuflæði er samtala þess orkuflæðis sem fer beint í gegn um glerið og þeirrar orku sem glerið gleypir en hleypir síðan inn.

 

– Short Wave Shading Coefficient  (Skuggastuðull stuttbylgja)
Beint orkuflæði (DET) margfaldað með 0,87.


UV Ultra-violet – Ultra-violet Transmission (Útfjólubláir geislar) 
Hlutfall útfjólublárra geisla sem berast í gegnum gler miðað við heildarmagn geislanna.  (Sveiflutíðni milli 280 og 380 nm).


U–gildi – Varmatapsstuðull (U-value)
Varmatapsstuðullinn (U–gildið) er magn varma í wöttum sem tapast á einni klukkustund gegnum 1 m2 flöt þegar hitamismunur úti og inni er 1° Kelvin.

 

U-gildið er reiknað út frá breytistuðli yfirborðshita glers m/v 8 W/m2K og 23 W/m2 K úti.

Því lægra sem U-gildið er því minna er orkutapið. 
  
Samkvæmt byggingarreglugerð nr.441/1998 grein nr. 180.3
,,Við ákvörðun U-gilda byggingarhluta skal taka mið af æskilegum innilofthita og fyrirhugaðri notkun. Fyrir gler í íbúðarhúsnæði og önnur fullhituð húsnæði skal varmatapsstuðul vera 2,0 W/m2 K eða lægri”. Samverk framleiðir tvöfalt einangrunargler og einnig glært sólvarnargler með innbrenndri mjúkri húð sem hefur einangrunargildi allt að U=1.1 W/m2 K og uppfyllir því skilmála reglugerðarinnar.

Flotgler
Aðalhráefnið í flotgleri er kísilsandur (Si). Sóda (Na2O3) er bætt út í til að auðvelda bráðnun auk kalksteins og dólómíts sem eru stöðugleikaþættir. Þessi blanda er hituð í yfir 1500 °C í bræðsluofni og hellt yfir bráðið tin og látið kólna hægt niður í umhverfishita. Með þessari aðferð næst rennislétt yfirborð, gott gegnsæi og jöfn þykkt.

Hér má nálgast upplýsingar um staðsetningu og opnunartíma Samverks.

Hér er hægt að reikna út orkusparnað og kostnað við endurglerjun Orkusetur - Reiknivél

Glerverksmiðjan Samverk ehf | Eyjasandi 2, 850 Hella | Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi | Sími 488 9000 | Fax 488 9001 | samverk@samverk.is