|
|
| |
| Ýmsar hagnýtar upplýsingar varðandi hljóð |
|
- RW [dB] er vegið meðaltal fyrir hljóðeinangrun sem mæld er á tilraunastofu við mismunandi tíðnir.
- RW + C [dB] gildir gegn hátíðnihljóðum.
- RW + Ctr [dB] gildir gegn lágtíðnihljóðum.
- Sveiflutíðni (Hz) hljóðs má flokka í lágtíðni undir 300 Hz, meðaltíðni milli 300-1200 Hz og hátíðni yfir 1200 Hz.
- Aukin glerþykkt bætir hljóðeinangrun gegn lágtíðni hljóðbylgjum.
- Samlímt gler með sérstakri hljóðeinangrandi filmu á milli glerjanna bætir verulega hljóðeinangrun.
- Misþykk gler og eða aukið loftbil í tvöföldu einangrunargleri bætir hljóðeinangrun rúðunnar.
- Minnsta hljóðbreyting sem mannlegt eyra skynjar er breyting sem nemur 1 dB.
- Hættumörk fyrir óvarið eyra 85-90 dB (A)
- Meiri hávaði er frá bílum í brekkum en á flatlendi.
- Meiri hávaði er frá þungum bílum en léttum.
- Umferðarhávaði vex með meiri hraða.
- Umferðarhávaði við hús getur breyst um 5 dB eftir því hvort það er meðvindur eða mótvindur.
- Umferðarhraði undir 70 km/klst. gefur frá sér lágtíðnihjóð (meira vélarhljóð).
- Umferðarhraði yfir 70 km/klst. gefur frá sér hátíðnihljóð (meiri dekkjahvinur).
|
Skynjun fólks á breytingu hljóðstigs í dB.
|
| Ca. 1 dB |
Varla merkjanleg breyting |
| 2 - 3 dB |
Merkjanleg breyting |
| 4 - 5 dB |
Vel merkjanleg breyting |
| 5 - 6 dB |
Veruleg breyting |
| 8 - 10 dB |
Breyting skynjast sem helmingun á hávaða eða tvöföldun hávaða |
| Hljóðstig við ýmsar aðstæður. |
Hljóðstig dB. |
| Hljóðlát skrifstofa |
50 |
| Venjulegt samtal |
65 |
| Þota í lendingu (DC-8 ) 1000 m hæð |
75 |
| Hávaðasöm stórborgargata |
85 |
| Stór vörubíll í brekku 5-10 m fjarlægð |
95 |
| Diskótek |
110 |
| Sársaukamörk |
120 |
| Nærri þotu (DC-8) í flugtaki |
130 |
Heimildir: AGS, Samverk, Lydteknisk Institut.
|