Hafa samband Veftré Minnka letur Stækka letur English
Forsíða FyrirtækiðVörurSamstarfsaðilarPantanir og tilboðBæklingarTæknilýsingarFróðleikurTenglar
 
Pauli und Sohn

Pauli und Sohn er þýskt fyrirtæki sem framleiðir og selur festingar af ýmsum toga fyrir gler. 
Samverk hefur selt glerklemmur frá Pauli und Sohn um árabil og allskonar festingar fyrir gler, t.d. glerskyggni, glerskápalamir og handföng svo eitthvað sé nefnt.  Glerverksmiðjan Samverk er umboðsaðili PS á Íslandi.  Smelltu á myndirnar í hverjum flokki til að sjá meira í myndasafni okkar.

Afgreiðslulúgur
Afgreiðslulúgur úr áli eða plasti sem hægt er að fá í ýmsum útgáfum og litum.
Litir í afgreiðslulúgum:

Vörunr. 2800, 2820 og 2842

  • EO/12 - Állitað innbr. lakk
  • EO/14 - Hvítt innbr. lakk
  • EO/15 - Brúnt innbr. lakk
  • RAL litir að eigin val

Vörunr. 2848

  • KU4 - Silfur grátt
  • KU7 - Króm glans

Álímdar glerfestingar
Kostir álímdra festinga eru þeir helstir að ekki þarf að bora glerið.  Festingarnar eru límdar á með svonefndu Conloc lími en límið þarf að herða undir útfjólubláu ljósi.  Þetta er flókin vinna sem eingöngu er unnin af starfsmönnum Samverks. Festingarnar koma allar í burstuðu stáli.

Lamir, lásar og hnúðar fyrir glerskápa og hurðir.

Glerskyggni
Top-Connect festingar í burstuðu stáli sem eru ætlaðar til að festa glerskyggni utandyra á einfaldan hátt.  Hægt er að fá þrjár útgáfur af veggfestingunum: Basic sem er hringlaga eða ferkantað, Triangle sem er þríhyrningslaga og Diamond sem er tígullaga.
Handföng
Ágætt úrval handfanga frá Pauli und Sohn m.a. mjög nett stálhandföng.
Hilluberar
Pauli und Sohn bjóða upp á ágætt úrval hillubera.  Festingarnar eru úr Sinki eða burstuðu stáli.

Hilluberar fást í eftirtöldum litum:

  • ZN0 - Sink ómeðhöndlað
  • ZN1 - Slípað sink matt króm
  • ZN2 - Messing matt
  • ZN5 - Slípað sink, glans
  • ZN7 - Slípað sink, gyllt 

 

  • ZN14 - Sink, hvítlakkað
  • ZN19 - Sink, bronslitað
  • ZN22 - Sink, stáláferð
  • RAL litir sérpantað
  • VA1 - Stál, slétt
  • VA2 - Stál, burstað
  • Klemmufestingar
    Klemmurnar eru til notkunar inni og henta sérlega vel til að festa gler í t.d. handriðum og skilveggjum.    Þær eru úr sinki en yfirborðsmeðhöndlaðar á mismunandi hátt og fást í mörgum litum.  Mismunandi eftir festingum hvaða litir eru fáanlegir. Hægt er að fá þær til útinotkunar með glæru verndarlakki. Hægt er að fá öryggispinna í allar klemmurnar. Flestar þeirra eru einnig gerðar fyrir röruppistöður.

    Fáanlegir litir:

    • ZN0 - Sink ómeðhöndlað
    • ZN1 - Slípað sink, matt króm
    • ZN5 - Slípað sink, glans króm
    • ZN7 - Slípað sink, gyllt
    • ZN12 - Állitur, innbr. lakk   
    • ZN14 - Hvítt, innbr. lakk
    • ZN15 - Brúnt, innb. lakk
    • ZN16 - Svart, innbr. lakk
    • ZN20 - Slípað sink - matt króm stálútlit  
    • ZN22 - Sink - stálútlit

    Sérpantaðir litir:
    K er lakkhúðaður litur með glæru lakki, ætlað til notkunar úti

    • RAL - Sink RAL-litað
    • ZN1-K - Slípað sink, matt króm
    • ZN5-K - Slípað sink, glans króm
    • ZN7-K - Slípað sink, gyllt
    • ZN20-K - Slípað sink - matt króm stálútlit
    • ZN22-K - Sink - stálútlit
    • ZN30 - Sink "stone light" útlit       
    • ZN31 - Sink "stone dark" útlit
    Klemmufestingar úr stáli
    Pauli und Sohn framleiða hágæða stálklemmur úr ryðfríu V4A stáli.  Dæmi um notkunarstaði eru t.d sundlaugar (klór) og utanhúss við sjávarsíðuna (selta).   Hægt er að setja öryggispinna í klemmurnar.
    Fáanlegar áferðir í stálklemmum:

    VA1 - Slípað ryðfrítt stál

    VA2 - Burstað ryðfrítt stál

    Punktfestingar
    Bjóðum úrval af punktfestingum og skiltafestingum frá Pauli og Sohn.  Festingarnar eru flestar úr stáli en einnig áli og sinki.
    Fáanlegir litir:
    • VA
    • VA1
    • VA2
    • VA7
    • E0
    • E1EV1
    Rennihurðir fyrir skápa
    Hljóðlátt rennihurðakerfi fyrir skápa eða t.d. til að loka afgreiðslurými.  Ætlað fyrir glerþykktir frá 5 mm og upp í 10 mm.  Þyngd pr. lengdarmeter er frá 20 kg. upp í 140 kg. eftir útfærslum.  Hægt að fá rennihurðaprófílana fóðraða að innanverðu til að minnka hljóð frá hjólunum.  Kerfið fæst með ýmsum fylgihlutum s.s. lás, lokum á enda, og fingurgróp.
    Litir:
    • E3 - Slípað ál
    • E6 / EV1 - Slípað ál - natur
    • E6 / EV3 - Slípað ál - gyllt
    • E6 / C34 - Bronslitað ál
    Speglafestingar
    Bjóðum upp á tvær gerðir spegilfestinga sem báðar eru lagervara.
    U-prófílar
    U-prófílar eru festingar sem henta í margar mismunandi uppsetningar á gleri.  Þeir eru framleiddir úr áli og fást í allt að 5 metra lengd.  15 x 15 mm, 20 x 20 mm og 30 x 20 mm eru lagerstærðir í krómi og burstuðu áli en aðrar stærðir má sérpanta.  Sérpantaðar stærðir eru 8 x 8 mm, 10 x 10 mm, 12 x 11 mm, 20 x 17 mm, 25 x 25 mm og 40 x 20 mm.
    Fáanlegir litir:
    • E0 / 14 - hvítt innbr. lakk
    • E1 / 22 - Slípað ál, nikkelhúðað
    • E3 - Slípað ál
    • E3 / 50 - Slíp. ál, krómað glans
    • E6 / EV1 - Ál "natur"
    • E6 / EV3 - gyllt
    • E6 / C34 - Dökkt brons

    Hér má nálgast upplýsingar um staðsetningu og opnunartíma Samverks.

    Hér er hægt að reikna út orkusparnað og kostnað við endurglerjun Orkusetur - Reiknivél

    Glerverksmiðjan Samverk ehf | Eyjasandi 2, 850 Hella | Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi | Sími 488 9000 | Fax 488 9001 | samverk@samverk.is