Hafa samband Veftré Minnka letur Stækka letur English
Forsíða FyrirtækiðVörurSamstarfsaðilarPantanir og tilboðBæklingarTæknilýsingarFróðleikurTenglar
 
Stremler

Samverk hefur frá árinu 2000 haft umboð fyrir festingar frá Mabglass Europe B.V. í Belgíu en á árinu 2004 sameinaðist Mabglass franska fyrirtækinu Stremler S.A. Stremler hefur bækistöðvar sínar í Norður-Frakklandi og er hluti af fyrirtækjasamsteypunni Assa Abloy AB.

Handfang með talnalás
Leiðbeiningar um notkun / Fréttablað um handfangiðUpplýsingar um opnun
Handfangið er með þægilega aðgangsstýringu sem er auðveld í ísetningu. 4-6 stafa númer / allt að 9 notenda númer. Handfangið passar fyrir Lumira og Bastille skrár fyrir glerþykktir 8, 10 og 12 mm, einnig er hægt að nota það fyrir tréhurðir. Handfanginu fylgja tvö CR2 lithium batterí. Ekki er þörf á að leggja rafmagn að skránni.

Handföng og hnúðar
Frá Stremler erum við með nokkrar gerðir handfanga og hnúða.
Hurðaskrár
Höfum í boði frá Stremler gott úrval af hurðaskrám fyrir glerhurðir og einnig mótstykki fyrir skrár sem og hliðarhengdar lamir fyrir hurðir í fals.  Fjórar mismunandi gerðir eru í boði, Aperio, Bastille, Lagune og Stremler series.
Lamir og festingar
Samverk býður fjölbreytt úrval glerfestinga frá Stremler Glass Hardware, m.a.: Hurðaskrár og lamir í karm, lamir og festingar fyrir glerveggi og fleira.  Fjórar mismunandi gerðir eru í boði, Cilindric, Cilindric Cameleo, Elite og Stremler series.
Gólfpumpur
Mab gólfpumpurnar hafa langa sögu og eru annáluð gæðavara.  Fáanlegar í nokkrum útfærslum eftir stærð og þunga hurða og mismunandi eiginleikum.  Frá Mab fást einnig pumpur sem byggja má inn ofan við hurðir.
Prófílar
Samverk hefur á lager svonefndan klemmuprófíl.  Hann er 40 mm hár og fæst með tveimur áferðum á áfellum. Þá er 80 mm prófíll einnig fáanlegur. 
SDS Rennihurðakerfi
SDS mynd
Við bjóðum svonefnt SDS rennihurðakerfi frá Stremler og Cilindric rennihurðafestingar. SDS kerfið er gert fyrir 60, 100 og 200 kg. hurðir.  Hægt er að fá áfellur í tveimur litum til að fela umbúnaðinn.
Cilindric er framleitt úr burstuðu stáli og er í sívölu formi. Afar vönduð vara sem vekur eftirtekt fyrir nútímalegt útlit. Bæði fyrir hefðbundnar innihurðir sem og rennihurðir.

 

Hér má nálgast upplýsingar um staðsetningu og opnunartíma Samverks.

Hér er hægt að reikna út orkusparnað og kostnað við endurglerjun Orkusetur - Reiknivél

Glerverksmiðjan Samverk ehf | Eyjasandi 2, 850 Hella | Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi | Sími 488 9000 | Fax 488 9001 | samverk@samverk.is