|
|
| |
| K-gler - varmaeinangrunargler |
|
Stærð og þykkt
Framleiðslustærð K-glers er allt að 2300x3300 mm.
Stærra gler fæst með lengri afgreiðslufresti.
Glerþykktir K-glers : 4 og 6 mm.
Glerþykktir í glæru venjulegu flotgleri: 4, 5, 6, 8, 10 ,12 mm.
Herðum gler ef þörf er á.
Notagildi
Tvöfalt K-einangrunargler uppfyllir kröfur byggingarreglugerðar um einangrunargler í íbúðarhúsnæði og öðru fullhituðu húsnæði þar sem fólk dvelst að staðaldri.
Bæklingar: Smelltu hér til að sækja bækling um K-gler á PDF formi. Bæklingurinn er á ensku.
Nánar um Low E-, ....K-glerið
K-glerið endurkastar varma frá hitagjöfum innanhúss með langa bylgjulengd s.s. ofnum og ljósum, fólki, en hleypir sólarvarma með stutta bylgjulengd inn um rúðuna. Með þessum eiginleikum fæst aukin einangrun.
Hefðbundin samsetning einangrunarglers er úr tveimur glerskífum:
glært flotgler + loftrúm + K-gler.
Venjulega er einungis eitt K-gler í hverri einangrunarglers rúðu.
K-gler má einnig nota sem einfalt gler og í þrefalt gler.
Með því að nota K-gler í annarri skífunni af tveimur í einangrunarglerrúðu næst fram svipað einangrunargildi og í venjulegri þrefaldri rúðu.
K-glerið er venjulega notað sem innri skífa og húðin látin snúa inn í loftrúmið (flötur nr. 3 talið utan frá í tvöfaldri rúðu).
Erlendis er húðað einangrunargler kallað Low E og U einangrunargildi nefnt með til skilgreiningar því mismunandi Low E gler eru til. Low E stendur fyrir low emessivity (lágleyðni gler, tapar minna af orku út ).
K-gler, low E, er flotgler með gegnsærri húð úr eðalmálmi.
Við framleiðslu þess er örþunnri, gegnsærri málmhúð úðað yfir aðra hlið flotglersins við ca. 600 °C, rétt eftir að það kemur úr bræðsluofninum.
Húðin samlagast gleryfirborðinu, eykur einangrunarhæfnina og er mjög sterk og endingargóð.
|