Glerverksmiðjan Samverk ehf hefur hafið framleiðslu og sölu á Top N+ einangrunargleri. Glertæknilegir eiginleikar þess, hvað varðar einangrunargildið, eru betri en hjá öðrum hefðbundnum húðuðum glertegundum.
Glerhúðin endurkastar hitageislum innanhúss aftur inn í íbúðina sem leiðir til minna orkutaps og betri einangrunar. Með Top N+ gleri ásamt auknu gasfylltu loftbili allt að 16mm eykst einangrun glersins enn frekar. Top N+ hefur glært hlutlaust útlit eins og hefðbundið einangrunargler.
Glerþykktir á lager;
4mm
6mm
Hámarks framleiðslustærð er 2100 mm x 3500 mm. Lágmarks framleiðslustærð er 250 mm x 350 mm. Aðrar stærðir; hafa skal samband við sölumenn.