Hafa samband Veftré Minnka letur Stækka letur English
Forsíða FyrirtækiðVörurSamstarfsaðilarPantanir og tilboðBæklingarTæknilýsingarFróðleikurTenglar
 
Einfalt flotgler

Stöðug tækniþróun hefur gert flotglerið fjölhæft og eitt af mikilvægustu byggingarefnunum.

Grunneiginleikar flotglers er að;  hleypa dagsljósi í gegnum sig;  geta horft í gegnum það; veita vernd gegn veðri og vindum. 
Flotgler getur verið glært gegnsætt, litað,  hálfgegnsætt eða ógegnsætt, afmarkað rými, opnað þau og stækkað, hefur ákveðinn léttleika og sérstaka tilfinningu í umgengni.

Flotgler hefur margvíslegt notagildi og er notað bæði innanhúss og utanhúss;  í heimahúsum, á skrifstofum, í verslunum, hótelum, veitingastöðum o.fl. ; sem einangrunargler, glerhurðir, glersturtuklefar, glerskilveggi, glerhandrið, glergólf, glerþrep, glerhillur, listaverk o.fl.  o.fl. 

Glerþykktir og stærðir:
Glært flotgler: 4, 6, 8, 10, 12, 15, 19 mm. 
Clearvision er extra glært flotgler:  ýmsar glerþykktir.
Sýrubaðað glært gler: ýmsar glerþykktir.
Margar tegundir af sólvarnaragleri; oftast 6 mm glerþykkt.

Herslustærð í einföldu gleri: 2000 x 3500 mm.
Samlímt gler: 2000 x 3500 mm.
Tvöfalt gler; hámarksstærð 2000 x 3500 mm. 
Aðrar stærðir, hafið samband við sölumenn okkar.

Lagerstærð flotglers er yfirleitt 3210 x 5100 mm upp á glernýtingu; en vinnslustærð er minni, leitið upplýsinga hjá sölumönnum.

Flotgler er hægt að vinna á ýmsan hátt; skera, slípa, bora, sandblása, lakka, herða, samlíma ofl.
Göt mega ekki vera mjög nálægt köntum.
Leitið upplýsinga hjá sölumönnum.

Hér má nálgast upplýsingar um staðsetningu og opnunartíma Samverks.

Hér er hægt að reikna út orkusparnað og kostnað við endurglerjun Orkusetur - Reiknivél

Glerverksmiðjan Samverk ehf | Eyjasandi 2, 850 Hella | Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi | Sími 488 9000 | Fax 488 9001 | samverk@samverk.is