Hafa samband Veftré Minnka letur Stækka letur English
Forsíða FyrirtækiðVörurSamstarfsaðilarPantanir og tilboðBæklingarTæknilýsingarFróðleikurTenglar
 
Hamrað gler

Hamrað gler er mismunandi ógegnsætt, en hleypir birtu í gegn.  Mynstrið er pressað í glerið í lok bræðslu þess með því að renna því á milli tveggja valsa, stundum kallað dregið gler. Á öðrum valsinum er mynstrið sem glerið fær.

Glerið er oftast glært en er einnig til reyklitað í tegundinni Chinchilla. Hamrað gler hentar í hurðir og glugga, skilveggi, baðherbergi, eldhús, hillur, skápa, ísskápa, afgreiðsluborð, stigaganga, handrið, húsgögn ofl.

Stærð og þykkt: 
Algeng lagerstærð er 1600 x 2130 mm.  Allar gerðir eru 4 mm en Crepi er einnig til 8 mm.

Við pöntun skal ávalt skilgreina glermálið í breiddarmál og hæðarmál til að fá munstrið í glerinu til að liggja rétt í glugganum; t.d. við útidýr er oft gler í eða við hliðina á útidyrahurðinni og síðan gler fyrir ofan  hurðina og þá þarf að passa að munstrið "liggi eða snúi" eins í glerinu.

 

Satinbel glært 4mm.  Fínhamrað, nánast ekkert munstur, silkiáferð. Chinsilla glært
4 mm. Einnig til 4 mm reyklitað. Fínhamraðar línur.
Crepi  glært
4mm einnig til 8 mm.  Fínhamraðir litlir deplar/dropar 
Quatrix glært/grátt.
Hamrað, litlir ferningar.
 
Vírgler S,  völsuð áferð, loftbólur og fleira, með vír. Vírgler O,
glært með vír, hamrað, punktar.
Vírgler pólerað,
glært með vír.
 

Bæklingar: (ensku)
Crepi
Chinchilla
Quatrix

Hér má nálgast upplýsingar um staðsetningu og opnunartíma Samverks.

Hér er hægt að reikna út orkusparnað og kostnað við endurglerjun Orkusetur - Reiknivél

Glerverksmiðjan Samverk ehf | Eyjasandi 2, 850 Hella | Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi | Sími 488 9000 | Fax 488 9001 | samverk@samverk.is