|
|
Hitaþolið gler er gegnsætt gler (glært - örlítið út í gulbrúnt ) sem þenst lítið út við hita. Það þolir allt að 700 °C hita og hentar t.d. sem gler fyrir kamínur, arna og í iðnaðartæki.
Hitaþolið gler er hægt að panta eftir máli og það er hægt að bora göt og slípa kanta á hitaþolnu gleri. Ath. þetta gler er ekki eldvarnargler.
Tæknilýsing á ensku
Stærð og þykkt: Hámarksstærð 880x1560 mm. Þykkt 4 mm.
|