Sólvarnargler eru bæði til glær og lituð, með eða án spegilhúðar.
Við samanburð á sólvarnargleri er oft skoðuð eftirfarandi gildi.
SF (solarfactor - líka kallað g-gildi) segir til um orku / hita frá sólinni sem kemst inn í gegnum glerið, því lægra gildi því betri sólvörn.
LT ( light transmission) segir til um ljósinnstreymi í gegnum glerið, því hærra gildi, því meiri birta fer inn í húsið.
LR ( light reflexion) segir til um speglun glersins, hvort glerið sé eins og venjulegt gler eða með spegiláferð, hærri % tala þýðir meiri speglun.
Til eru margar tegundir sólvarnarglers sem eru framleiddar af hráefnisframleiðendum víða um heim. Það má benda á kosti þess að velja glertegund sem er lagervara hér á landi til að afgreiðsla gangi hraðar og einnig til seinni tíma viðhalds og brota.
|