Energy N sólvarnarglerið er tvímælalaust eitt af mest spennandi glertegundum á markaðnum í dag. Helstu kostir þess eru þeir að það minnkar sólarhitann á sumrin, einangrar gegn kulda á veturna, innstreymi ljóss í gegnum glerið er hátt og glerið nánast glært.
Energy N er húðað með tvöfaldri ósýnilegri örþunnri silfurhúð, sem endurkastar sólarhita. Sólarstuðull þess er 41% sem þýðir að 59% af sólarhitanum er haldið úti. Energy N hefur einangrunargildið U= 1.1 W/m2 K sem er sambærilegt við bestu einangrunarglerin og dregur því úr orkukostnaði með betri einangrun hússins. Energy N hefur ljósinnstreymistuðul 71%, sem er nálægt það sama og fyrir hefðbundið tvöfalt gler.