Stærð og þykkt
Framleiðslustærð í einangrunargleri er allt að 2000x3210 mm. Stærra gler er með lengri afgreiðslufresti.
Glerþykkt á lager er 6 mm.
Notagildi
Hentar í íbúðarhúsnæði, skrifstofubyggingar, skóla o.fl. Það gefur byggingunum ákveðið útlit. Það minnkar einnig útfjólubláa geisla sólarinnar.
Til að bæta varmaeinangrunargildið “U” má setja Top N+ húðað Low E gler á móti litaða glerinu eða nota í þrefalt gler og uppfyllir það þá byggingareglugerð varðandi varmaeinangrun íbúðarhúsnæðis.
Nánar um glerið
Framleitt á sama hátt og venjulegt glært flotgler en auk þess er mismunandi málmefnasamböndum bætt í glerið. Þannig fær það ákveðinn lit. Algengastur er reyklitur, grár eða grænn. Með litnum öðlast glerið sólvarnareiginleika. Það dregur í sig hluta af sólarljósinu og minnkar því sólarhitann innanhúss.
Ljósendurkast af lituðu tvöföldu gleri er sambærilegt við glært gler eða 6–12% sem er talsvert minna en sólvarnargler með spegiláferð.
Örlítill blæbrigðamunur getur verið á lit eftir þykkt glersins. Því kann að vera ráðlegt að nota eina þykkt á sömu hlið byggingar.
|