Hafa samband Veftré Minnka letur Stækka letur English
Forsíða FyrirtækiðVörurSamstarfsaðilarPantanir og tilboðBæklingarTæknilýsingarFróðleikurTenglarCE merking
 
Stopsol Supersilver clear

Stærð og þykkt
Framleiðslustærð í einangrunargleri er allt að 2000x3210 mm.
Stærra gler er með lengri afgreiðslufresti.
Glerþykkt á lager er 6 mm.  

Notagildi
Hentar fyrir skrifstofur, opinberar byggingar, skóla, og atvinnuhúsnæði.

Til að bæta varmaeinangrunargildið “U” má setja Top N+ Low E húðað gler á móti Stopsol eða nota í þrefalt gler og uppfyllir það þá byggingareglugerð varðandi varmaeinangrun íbúðarhúsnæðis.

Silfurblá spegiláferðin gerir það að verkum að á daginn sést vel út, en ekki vel inn í byggingarnar.  Á kvöldin er þetta öfugt, þá sést lítið út, en vel sést inn í bygginguna ef inniljósin eru kveikt.


Nánar um glerið

Stopsol Super Silver Clear er flotgler með fallegri silfurblárri spegiláferð. Eðalmálmblöndu er úðað yfir 600°C heitt flotglerið rétt eftir að það kemur úr ofninum.  Málmhúðin gengur í samband við glerið.  Hún er sterk og endingargóð og kallast á fagmáli “hörð húð”.  Málmhúðin endurkastar sólargeislunum að vissu marki og myndar þannig sólarvörn.

Í tvöfaldri einangrunarglerrúðu er Stopsol höfð sem ytri skífa.  Málmhúðin er venjulega látin snúa inn í loftbilið (flötur nr. 2 talið utan frá).  Húðin má snúa út (flötur nr. 1) og hefur rúðan þá meiri ljósspeglun og meiri spegiláferð.

Stopsol Super Silver Clear má herða, samlíma í öryggisgler með filmu á milli glerja og vinna á margvíslegan annan hátt.

Hér má nálgast upplýsingar um staðsetningu og opnunartíma. Upplýsingar um sumarlokanir.
 
CE merking 

Glerverksmiðjan Samverk ehf | Eyjasandi 2, 850 Hella | Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi | Sími 488 9000 | Fax 488 9001 | samverk@samverk.is