Hafa samband Veftré Minnka letur Stækka letur English
Forsíða FyrirtækiðVörurSamstarfsaðilarPantanir og tilboðBæklingarTæknilýsingarFróðleikurTenglar
 
Handrið

Sérsmíðum glerhandrið eftir málum, gerum göt fyrir festingar ef með þarf. Við mælum með að gler í handrið og annarsstaðar þar sem hugsa þarf um fallvarnir sé samlímt gler. Útfærslur á handriðum fara yfirleitt eftir því hvernig það er fest. Stundum er glerið boltað með punktfestingum eða boltum að neðan í gegnum glerið og í gólfplötuna. Mikilvægt er að festa glerið án þess að þvinga það að gólfplötunni. Gler sem er þvingað og er undir spennu getur brotnað síðar.

Stundum er notað flatstál fremst og innst og samlímt glerið þar á milli með þéttu pakkningarefni sem aðskilur gler og stál. Einig er hægt að festa glerið með klemmum á stólpa. Í öllum útfærslum mælum við með að settur sé handlisti til styrkingar á handriðinu.
Viðarhandlisti til styrkingar Punktfestingar úr stáli Gler fest á stálstoðir
Myndasafn

Hér má nálgast upplýsingar um staðsetningu og opnunartíma Samverks.

Glerverksmiðjan Samverk ehf | Eyjasandi 2, 850 Hella | Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi | Sími 488 9000 | Fax 488 9001 | samverk@samverk.is