| Allir sturtuklefar sem Samverk framleiðir eru sérsmíðaðir og því getur þú alltaf fengið klefa sem passar inn á baðherbergið. Við bjóðum upp á mælingarþjónustu, hönnun, festingar, framleiðslu á klefanum og uppsetningu. Þá er einn aðili ábyrgur fyrir framkvæmdinni sem er mun einfaldara en þegar margir koma að verkinu. |