Eftir að pöntun er gerð þá fer glerið í framleiðslu. Fyrst er glerið skorið í réttar stærðir og fer síðan í samsetningu þar sem millibilslista er komið fyrir á milli glerskífanna. Loftrúmið milli glerjanna er myndað með állistum í ýmsum breiddum. Þeir eru fylltir af þurrkefni sem dregur í sig þann raka sem kann að verða eftir þegar rúðan er sett saman.
Við samsetningu á einangrunarglerinu er notuð tvöföld líming. Fyrst er (butyl)-borði límdur á állistann. Borðinn rýfur kuldaleiðni milli glersins og listans, síðan er rúðan límd saman á kantinum með sérstöku glerlími. Límið þarf tæpan sólarhring til að taka sig og hægt er að senda glerið út daginn eftir framleiðslu.
Einangrunin í samsettri rúðunni myndast meðal annars vegna loftsins milli glerjanna. Hægt er að fá bilið í rúðunni fyllt með argongasi í stað loftsins. Það bætir U-gildið, einangrun rúðunnar um ca. 0,2 til 0,3 W / m2 K.
Bestu einangrunarglerin hafa sérstaka eðal málmhúð á glerinu til að auka einangrunarhæfni þess.
Einangrunargildi glersins er kallað U-gildi og því lægra sem það er, því betra; en það segir til um orkutapið út um rúðuna.
Nýjustu og bestu einangrunarglerin hafa U-gildi allt niður í 1,1 W/m2 K.
Við kaup á einangrunargleri ætti húseigandi ávallt að bera saman einangrunargildi milli glertegunda.