

Brotin rúða eða móða á milli glerja?
Hér til hliðar getur þú sent okkur mynd og mál af glerinu sem þig vantar. Við svörum fljótt til baka með verðtilboði.
Einnig getur þú haft samband við okkur í síma 488-9000 eða kíkt til okkar á Smiðjuveg 2 í Kópavogi.
Í daglegu tali er oft talað um rúðu eða gler þegar átt er við einangrunargler. Það er gler sem notað er utanhúss til að halda hita inni, draga úr kulda og minnka hávaða.
Á Íslandi er tvöfalt einangrunargler algengast. Þá eru tvær glerplötur settar saman með bil á milli sem veitir einangrun gegn kulda og hitasveiflum.
Einangrunargler er til í mismunandi útfærslum og mikilvægt er að velja rétt gler eftir aðstæðum.

Tvöfalt einangrunargler getur haft ýmsa viðbótar eiginleika
Hert gler eykur öryggi og þolir högg upp að vissu marki.
Samverk er eina glerverksmiðja landsins með sérhæfðan ofn til að herða gler. Við getum framleitt og afhent hert gler á 7–10 dögum.
Sólvarnargler dregur úr hitamyndun í sólgluggum og áhrifum sólar á húsgögn.
Hljóðvarnargler minnkar utanaðkomandi hávaða.
Tegundir glerja:
TOP N+
Hefur mun betra einangrunargildi en önnur hefðbundin húðuð gler.
Lesa meira
ENERGY N SÓLVARNARGLER
Energy N sólvarnarglerið er mjög góður kostur fyrir heimilið. Helstu eiginleikar þess eru að minnka sólarhitann á sumrin, einangra gegn kulda á veturna.
Lesa meira
STOPRAY VISION SÓLVARNARGLER
Stopray Vision er nýtt einangrunar- og sólvarnargler og góður kostur fyrir skrifstofuna.
Lesa meira
Hægt er fá einangrunargler með hljóðvörn, öryggisgleri, sandblæstri , mynstri ofl. Leitið ráða hjá sölumanni.









