Sandblásið gler

Sandblásið gler er gler með mattri áferð þar sem áloxíði er blásið á. Möguleikarnir eru endalausir og er það hér sem hugmyndaflugið fær að ráða. Einnig getum við málað sandblásið gler og spegla sem gefur enn skemmtilegri möguleika.

Hægt er að nýta sandblásið gler á fjölbreyttan hátt t.d. sem skilrúm innanhúss, glerhurðir, sturtuklefa, baðherbergi, eldhús, handrið, húsgögn, skilti og skrautspegla.

Speglar eru oft sandblásnir aftan til á húðina svo ekki sé hægt að koma við sandblástursflötinn að framanverðu og einnig er hægt að setja ljós fyrir aftan spegilinn og þá kemur ljósið í gegnum sandblásna svæðið.

Leitið ráða hjá sölumanni fyrir frekari upplýsingar.

Sýnishorn

Hafðu samband

Fylltu út formið hér fyrir neðan, sendu okkur mynd eða teikningu.
Einnig getur þú haft samband við okkur í síma 488-9000.

Hlaða upp skjölum (max 5 MB)