Einangrunargler
Á Íslandi er tvöfalt einangrunargler algengast en þá eru tvær glerplötur settar saman með loftabili á milli glerja sem veitir einangrun gegn kulda og kuldasveiflum. Í daglegu tali er oft talað um rúðu eða gler þegar átt er við einangrunargler. Það gler er notað til þess að halda inni hita, draga úr kulda og minnka hávaða.
Einangrunargler er til í mismunandi úfærslum eða hefðbundið einangrunargler, sólvarnargler, hert gler og hljóðvarnargler.
Top N+ er hefðbunduð einangrunargler með framúrskarandi einangrunargildi. Glerið hentar við flest allar aðstæður þar sem ekki er krafa um sólvörn.
Sólvarnargler eins og Energy N og Stoprey Vision sem dregur úr hitamyndun í sólgluggum og áhrifum sólar á innanstokksmuni eins og húsgögn og parket.
Hert gler eykur öryggi og þolir högg upp að vissu marki. Litað gler er hægt að fá í gráu og brons. Hljóðvarnargler dempar utanaðkomandi hávaða.
Þegar velja á einangrunargler eru nokkur atriði sem ber að hafa í huga. Hvernig er mælt fyrir nýja glerinu en algengast er falsmál eða ljósmál. Smelltu hér til að fá leiðbeiningar um hvernig skal mæla fyrir nýju einangrunargleri. Einnig þarf að taka tillit til vindálags og ákvarðast þykkt á gleri eftir stærð. Í opnanlegum gluggum og hurðum er gler yfirleitt þynnra en í föstu fagi og er gott að skrá niður við mælingu.
Hafðu samband og söluráðgjafar
okkar aðstoða við val á réttu gleri

Gler tegundir


