Falsmál
Þegar falmál er mælt er það yfirleitt gert að utan. Mæla skal breidd og hæð með gluggalistum. Til að fá rétt glermál eru 8 mm dregnir frá. Það er nóg fyrir þig að senda okkur fálmál, við sjáum um að draga frá.
Ljósmál
Þegar ljósmál er mælt er það gert innandyra. Mæla skal breidd og hæð alveg út að gluggakörmum. Til að fá rétt glermál eru 26 mm bætt við. Það er nóg fyrir þig að senda okkur ljósmál og við sjáum um að bæta við.

Glermál
Eins og nafnið gefur til kynna þá er einungis verið að mæla glerið sjálft. Hér þarf hvorki að bæta við eða draga frá. Glermál er alltaf það sem verður á endanum framleitt.

Hvernig skal mæla
Þegar þarf að mæla fyrir nýju einangrunargleri er gott að lesa yfir þessar leiðbeiningar áður.
Það eru þrjár leiðir til að mæla fyrir einangrunargleri og er algengast að mæla fálsmál og er algengt að það sé talað um stíft fálsmál. Hinar tvær aðferðirnar eru svokallað ljósmál og svo glermál.


