Skilmálar
Skilmálar
Skilmálar.
Glerverksmiðjan Samverk ehf.
Samskipti.
Öll helstu samskipti um tilboð, pantanir og aðrar upplýsingar milli Glerverksmiðjunnar Samverks ehf og viðskiptavina skulu vera í tölvupósti. Upplýsingar milli aðila gefnar í símtali og kostnaður vegna mistaka sem af því hlýst, er alfarið á ábyrgð viðkomandi viðskiptavinar. Glerverksmiðjan Samverk ehf ber ekki ábyrgð á vinnubrögðum þriðja aðila, svo sem verktaka/iðnaðarmanna, einstaklinga eða fyrirtækja, jafnvel þó Glerverksmiðjan Samverk ehf hafi bent á viðkomandi til að annast verkefni.
Pöntunarstaðfesting með innáborgun
Eftir að tilboð eða pöntun er gerð sendir Samverk staðfestingu á tölvupósti til viðskiptavinar, sem þarf að lesa yfir upplýsingar á tilboði og/eða pöntun og samþykkja. Ganga frá greiðslu / innáborgun áður en pöntun fer í framleiðslu. Öll verð eru staðgreiðsluverð nema annað sé tekið fram.
Við pöntun skal greiða að fullu fyrir vörur að verðmæti undir kr. 250.000. en yfir þeim mörkum skal greiða 50% staðfestingargjald áður en framleiðsla hefst. Eftirstöðvar greiðast fyrir afhendingu vörunnar.
Að öðru leiti er vísað í viðskiptasamninga, greiðslufresti og/eða reikningsviðskipti
Reikningsviðskipti.
Fylla þarf út umsóknarform um reikningsviðskipti, sjálfsábyrgð, úttektarheimild og greiðsluskilmála. Glerverksmiðjan Samverk ehf áskilur sér þó ávallt rétt til að fara fram á innborgun / fyrirframgreiðslu ef um stór verkefni er að ræða. Lokað verður fyrirvaralaust á úttektir fram yfir heimildir ef ekki hefur verið um þær samið. Vanskil fram yfir eindaga verða send í lögfræði innheimtu með tilheyrandi kostnaði ásamt því að verða tilkynnt til Credit Info.
Greiða skal alltaf samkvæmt útsendum kröfum í netbanka ásamt dráttarvöxtum ef komið er fram yfir eindaga; viðskiptavinir í reikningsviðskiptum bera innheimtukostnað/seðilgjöld. Varan er eign Glerverksmiðjunnar Samverks ehf þangað til að fullnaðargreiðsla hefur borist.
Skilmálar
Glermál eru á ábyrgð viðskiptavinar sem skulu útvega upplýsingar um endanleg glerskurðarmál, glertegund, glerþykktir og aðrar tæknilegar útfærslur verkefna, tilbúnum til framleiðslu og hæfum til innsláttar í framleiðslukerfi verksmiðjunnar.
Glerverksmiðjan Samverk ehf. áskilur sér alltaf rétt til gjaldfærslu útseldrar vinnu starfsmanns vegna undirbúnings pantana fyrir framleiðslu og tæknilega útfærslu, svo og fyrir að mæla upp skapalón, glugga og önnur verkefni.
Kaupanda er bent á að láta burðarþolshönnuð útfæra og reikna út þykktir glers í hönnunarferli viðkomandi byggingar.
Glerverð miðast ávallt við framleiðsluhæfar véltækar glerstærðir
Véltæk almenn framleiðslustærð glers; Lágmarksstærð er (190 x 350 mm) og hámarksstærð er (2000 x 3500 mm). Leita þarf upplýsinga til söluráðgjafa með aðrar glerstærðir og útfærslur.
Lágmarks reikningsfærð glerstærð reiknast 0,5 m2/stk.
Auka gjald leggst á glerstærðir sem eru utan við véltækar framleiðslustærðir. Á skáskornar rúður leggst 37% álag og á hringlagaform leggst 100% álag.
Breytingargjald er tekið fyrir að breyta glermálum pöntunar eftir staðfestingu til framleiðslu.
Hraðpöntun; ef óskað er eftir forgangsafgreiðslu umfram áætlaðan afgreiðslutíma hverju sinni í verksmiðju, reiknast 30% álag á viðkomandi pöntun, taka verður strax fram við pöntun ef um forgangs eða hraðpöntun er að ræða.
Pökkun, frágangur, flutningur, flutningsrekkar.
Leiga á flutningsrekkum er 9500 kr í allt að 10 daga. Hafi flutningsrekka ekki verið skilað innan þess tíma sendir Glerverksmiðjan Samverk ehf leigureikning fyrir hverja viku þar sem gjaldfært er 20.000 kr. á kaupanda. Eftir 3. mánaða vanskil er sendur 400.000 kr. reikningur fyrir virði rekkans. Týnist rekki eða skemmist er það á ábyrgð kaupanda.
Kaupandi ber ábyrgð á þeim glerflutningsrekkum sem hann hefur í sinni umsjá og ber að tilkynna strax um tóman flutningsrekka til Samverks í síma 488 9000 eða með tölvupósti á samverk@samverk.is.Samverk sækjir flutningsrekka ef samið hefur verið sérstaklega um akstursgjald á sértilgreind svæði. Hægt er að fá upplýsingar hjá sölumönnum um hvert Samverk sækjir flutningsrekka. Viðskiptavinir verða annars að skila rekkanum í sama ástandi á starfsstöð Samverks eða til baka á vöruflutningamiðstöð með sannarlegum hætti.
Viðskiptavinur ber ávallt flutningskostnað frá vöruflutningamiðstöðvum á endanlegan afhendingarstað og aftur til baka nema um annað sé samið sérstaklega.
Afgreiðslutími.
Uppgefinn framleiðslutími / afhendingardagur tilboða og pantana er alltaf áætlaður, er ekki loforð og er háður hráefnis- og verkefnisstöðu hverju sinni. Athugið að undirbúa þarf tímanlega hráefnisöflun fyrir stærri verkefni. Ekki er bættur kostnaður sem hlýst af ef raunverulegur vöruafhendingtími fer fram yfir áætlaðan framleiðslutíma / afhendingardag vörunnar. Ekki er hægt að taka frá pláss í framleiðsluröðinni með ófullgerðum glermálum. Athugið að mæling verkefna og tímafrekur undirbúningur fyrir framleiðslu, akstur og uppsetningu vörunnar er ekki innifalinn í áætluðum framleiðslutíma / afhendingardegi. Ef vara er ekki sótt innan 3 mánaða frá pöntun áskilur Glerverksmiðjan Samverk ehf sér fullan rétt til að farga vörunni á kostnað kaupanda og jafnframt að innheimta greiðslu fyrir söluvirði vörunnar.
Ábyrgðir, framleiðslukröfur, frávik.
Framleiðsluvörur Glerverksmiðjunnar Samverks ehf eru framleiddar samkvæmt eftirfarandi stöðlum: Einangrunargler skv. ÍST EN 1279, hert gler skv. ÍST EN 12150, samlímt gler skv. ÍST EN 12600. Kaupandi ber ábyrgð á glerinu eftir að það hefur verið afgreitt heilt út af flutningabíl Samverks. Kaupanda er bent á að kaupa sér brotatryggingu þar sem glerið er ótryggt í geymslu, ísetningu og í flutningabílum sem ekki eru á vegum Glerverksmiðjunnar Samverks ehf.. Ábyrgð á einföldu gleri, festingum og vinnu er samkvæmt almennum lögum um lausafjárkaup. Ábyrgðartími á límingu einangrunarglers er fimm ár að skilyrðum uppfylltum, sjá ábyrgðarskilmála á www.samverk.is. Eðlilegt telst að blæbrigðamunur geti verið á útliti glers milli hráefnissendinga, birgja og glerþykkta í sömu tegund. Skilgreining á frávikum og göllum í gleri er samkvæmt staðli ÍST EN 572. Kaupanda er bent á að skoða vöruna og athuga hvort hún uppfyllir kröfur viðkomandi áður en annar kostnaðarsamur undirbúningur verksins fer fram. Komi í ljós einhverjir ágallar eða mistök sem rekja má til Glerverksmiðjunnar Samverks ehf skal tilkynna það innan 3 daga frá afhendingardegi annars er athugasemdin ekki tekin gild. Sé glerið sannanlega gallað framleiðir Glerverksmiðjan Samverk ehf nýtt gler í staðinn, ekki er bættur kostnaður vegna umskipta glers, tækjakostnaður né annars kostnaðar. Athugasemdir viðskiptavina skal alltaf vera í samræmi við söluferlið, það er síðasti söluaðili vörunnar skal annast umkvörtunarefni viðskiptavinarins að fullu. Ekki er leyfilegt að stofna til útgjalda á kostnað Glerverksmiðjunnar Samverks ehf..
Varðandi gler í glerhandrið, gólfsíða glugga og svalaganga:
- Þar sem hert einfalt gler uppfyllir ekki kröfur um fallvarnir sem gerðar eru til glerhandriða, gólfsíðra glugga og svalaganga, þá Þarf kaupandi/húseigandi að gera viðbótar ráðstafanir til að krafa um fallvörn náist.
Uppsetning glerverkefna.
Verð á uppsetningu glerja eru ávallt miðuð við dagvinnutíma, að aðgengi sé gott á verkstað og hægt sé að fá örugga festu fyrir þau kerfi sem á að setja upp. Vinnutími reiknast frá þeim tíma sem starfsmenn Glerverksmiðjunnar Samverks ehf leggja af stað frá starfstöð fyrirtækisins í Kópavogi. Gengið er út frá því að hægt sé að bora í gólf eftir þörfum og að gólf, loft og veggir séu bein, lóðrétt og lárétt og hæf til uppsetningar. Ef gera þarf sérstakar ráðstafanir til að framkvæma uppsetningu, greiðist sú aukavinna sérstaklega. Einnig greiðist kostnaður sérstaklega vegna tækjaleigu eins og krana, lyftuvinnu og vinnupalla ásamt aukavinnu vegna glerburðar, t.d. upp hæðir í byggingum. Ef gleruppsetning / ísetning er unnin af starfsmönnum Glerverksmiðjunnar Samverks ehf er glerið í ábyrgð á meðan verkið er unnið. Húseigendur bera alltaf ábyrgð á að tilkynna og sýna uppsetningamönnum Glerverksmiðjunnar Samverks ehf hvar lagnir, t.d. vatns og rafmagnslagir, liggja í gólfum og veggjum.
Gildistími sölutilboða.
Almenn sölutilboð gilda í 20 daga frá dagsetningu tilboðs nema annað sé tekið fram.
Verðbreytingar.
Ef mismunur er á tilteknu tilboðsmagni og afgreiddu magni, ræður einingarverð tilboðs. Glerverksmiðjan Samverk ehf áskilur sér rétt til verðbreytinga ef forsendur verkefna breytast. Endurskoða samningsverð árlega og breyta í samræmi við byggingarvísitölu, gengi gjaldmiðla og almenna verðlagsþróun.
Ofangreindir söluskilmálar gilda ávallt, nema um annað sé samið á skriflegan hátt.
Söluskilmála, ábyrgðarskilmála og upplýsingar um CE merkingu, má finna á heimasíðu Glerverksmiðjunnar Samverks ehf, www.samverk.is
Nýjasta útgáfa upplýsinga á vef Glerverksmiðjunnar Samverks ehf. gildir hverju sinni og falla eldri útgáfur úr gildi sjálfkrafa.
- júlí 2025