Glerhandrið er frábær lausn til að viðhalda birtuflæði um rýmið. Útfærslur á handriðum fara yfirleitt eftir því hvernig það er fest. Við mælum með að gler í handrið og annars staðar þar sem hugsa þarf um fallvarnir að notað sé hert og samlímt gler.
Gler getur verið boltað með punktfestingum eða boltum að neðan í gegnum glerið og í gólfplötuna. Mikilvægt er að festa glerið án þess að þvinga það að gólfplötunni. Gler sem er þvingað og er undir spennu getur brotnað. Í öllum útfærslum mælum við með að settur sé handlisti til styrkingar á handriðinu.
Athugið að láta viðurkenndan ráðgjafa hanna útlit og ákveða festingar og reikna út glerþykktir.
Bjóðum upp á boltafestingar til að festa glerið.
Leitið ráða hjá sölumanni.
Bæklingur – Glerhandrið frá Pauli
Boltafest / punktafest
Litað stigagler
Hert gler













